Kaflar
1980-1989: Samstaða verður til í Póllandi

Í upphafi níunda áratugarins var slæmt efnahagsástand víða í Austur-Evrópu og mikil fátækt. Fólk var ósátt við stjórnvöld og stefnu þeirra. Erfitt var að mótmæla í þessum löndum enda tekið hart á öllu slíku.
Þá er það 12. ágúst 1980 að pólskt verkafólk fer í verkfall í borginni Gdansk. Leiðtogi þess var rafvirkinn Lech Walesa. Kröfur verkfallsfólksins var ekki bara hærri laun, það krafðist þess einnig að frjálsir fjölmiðlar yrðu leyfðir og að leyft yrði að stofna óháð stéttarfélög.
Það sem hófst í Gdansk breiddist út um allt land og við það lamaðist samfélagið. Ríkisstjórnin sá sér ekki annað fært en að ganga að kröfum verkafólksins. Hafði slíkt aldrei fyrr gerst í löndum austan járntjaldsins.
Í kjölfarið var verkalýðsfélagið Samstaða stofnað og á örskömmum tíma voru meðlimir þess orðnir um tíu milljónir.
Í ágúst árið eftir kom til verkfalls á ný, og nú var gerð krafa um auknar pólitískar umbætur. Ríkisstjórnin óttaðist uppreisn og setti herlög í landinu 1981. Þá var Walesa handtekinn ásamt þúsundum verkafólks.
Í júlí 1983 var herlögunum aflétt og þrátt fyrir að Eining hefði ekki fengið öllum kröfum sínum fullnægt hafði áfangasigur unnist sem leiddi til lýðræðislegra kosninga árið 1989.