Kaflar
1995: Friður á Balkanskaga

Þegar brestir fóru að myndast í kommúnistaríkjunum austan við járntjaldið fór einnig að hrikta í stoðum Júgóslavíu sem var ríki samsett úr smærri ríkjum. Í þessum ríkjum bjó fólk af ólíkum trúarbrögðum og menningu þannig að sjónarmið voru ólík og víða kom upp ágreiningur.
Í júlí 1991 braust Króatía undan Júgóslavíu og lýsti yfir sjálfstæði. Yfirstjórn ríkjasambandsins tók þessu illa og sendi her Júgóslavíu inn í Króatíu. Í apríl árið eftir lýsti Bosnía sömuleiðis yfir sjálfstæði og aftur var júgóslavneski herinn sendur á vettvang til að kveða sjálfstæðishreyfinguna niður.
Úr þessu varð stríð þar sem Serbar reyndu með öllum ráðum að halda ríkinu saman. Í kjölfarið var framinn fjöldi ódæðisverka, jafnvel fjöldamorð.
Alþjóðasamfélagið reyndi að stilla til friðar og gerði m.a. árásir á heri Serba í Bosníu í þeirri viðleitni.
Það var þó ekki fyrr en 14. desember 1995 að samið var um frið og í dag eru sex sjálfstæð ríki þar sem áður var Júgóslavía. Það eru Króatía, Slóvenía, Bosnía-Hersegóvína, Norður-Makedónía, Svartfjallaland og Serbía.