Kaflar

1996: Alias Grace og Angela´s Ashes

Alias Grace er skáldsaga eftir kanadíska rithöfundinn Margaret Atwood sem kom út árið 1996. Er þetta söguleg skáldsaga sem byggð er á morðinu á Thomas Kinnear og ráðskonu hans Nancy Montgomery árið 1843 í Kanada. Þjónustufólkið, Grace Marks og James McDermott, var ákært fyrir verknaðinn og dæmt. James McDermott var hengdur fyrir morðin og Grace Marks hlaut lífstíðardóm. Málið var á allra vörum í Kanada þegar það átti sér stað.
Atwood lætur sögu sína gerast tíu árum eftir verknaðinn og þar er það Grace Marks sem rekur fyrir sálfræðingi það sem gerðist. Hlaut sagan Giller-verðlaunin í Kanada og var tilnefnd til Booker-verðlaunanna. Þá er búið að gera vinsæla sjónvarpsseríu sem byggð er á bókinni.
Önnur bók sem vakti gríðarlega athygli árið 1996 var Angela´s Ashes eftir hinn írsk-ameríska Frank McCourt. Þar segir McCourt frá æsku sinni og uppvaxtarárum bæði í Bandaríkjunum og Írlandi.  Þrátt fyrir að sagan lýsi nöturlegu lífi er hún frábærlega skrifuð, fyndin og uppfull af gleði og von. Sagan gefur líka góða innsýn í líf manna á þessum árum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Eftir hvern er skáldsagan Alias Grace?

2. Hvers konar saga er Alias Grace?

3. Hvar gerist sagan Alias Grace?

4. Eftir hvern er Angela´s Ashes?

5. Hvar gerist Angela´s Ashes?

6. Hvers konar bók er Angela´s Ashes?