Kaflar
1991: Fall Sovétríkjanna

Þegar Mikhail Gorbachev varð leiðtogi 1985 stóðu Sovétríkin á tímamótum. Efnahagur landsins var í molum og almenn óánægja meðal íbúanna.
Til að mæta því kom Gorbachev fram með nýjar tillögur sem lutu að því að opna hagkerfið og samfélagið. Þá vildi hann breyta samskiptum Sovétríkjanna við önnur ríki.
Í maí 1988 dró Gorbachev her Sovétríkjanna frá Afganistan en stríðið þar hafði kostað gríðarlega fjármuni og var mjög óvinsælt heima fyrir. Þá hafði óánægja í Eystrasaltsríkjunum og öðrum ríkjum Sovétríkjanna magnast og íbúarnir kröfðust aukinnar sjálfstjórnar og jafnvel sjálfstæðis.
Í desember 1989, skömmu eftir fall Berlínarmúrsins, funduðu Gorbachev og George Bush á Möltu og lýstu yfir að kalda stríðinu væri lokið. Fyrir framgöngu sína naut Gorbachev mikilla vinsælda utan Sovétríkjanna, og honum voru veitt friðarverðlaun Nóbels árið 1990.
En heima fyrir var Gorbachev harðlega gagnrýndur. Annað hvort fannst fólki hann ekki ganga nógu langt í umbótum sínum eða þá að því fannst hann ganga alltof stutt.
Þann 7. nóvember 1990 fór allt á annan endann í Sovétríkjunum og fólkið krafðist fjölflokka lýðræðis. Það varð úr. Ríkið liðaðist í sundur og í Rússlandi var Boris Jeltsín kosinn forseti í fyrstu frjálsu kosningunum.