Kaflar

1985: Hungursneyð í Eþíópíu / Live Aid

Eþíópía er talin eitt elsta ríki í Afríku. Það var eina ríkið sem hélt sjálfstæði sínu í nýlenduslagnum um Afríku, allt þar til Ítalir réðust inn í landið 1936. Eþíópía fékk aftur sjálfstæði 1944.
Árið 1974 var ástandið í landinu slæmt og mikil óánægja með stjórnina. Þá var gerð uppreisn og ný stjórn tók við. Eftir það hófst stríð við uppreisnarheri í Erítreu sem var hérað nyrst í Eþíópíu en öðlaðist sjálfstæði 1993. Höfðu þessi átök mikil áhrif á efnahagsástandið í Eþíópíu sem var ekki beysið fyrir.
Árin 1983-1985 urðu miklir þurrkar í landinu sem ollu hungursneyð. Leituðu Eþíópar til vestrænna ríkja um hjálp en var synjað í fyrstu þar sem óttast var að hjálpin yrði notuð í stríðsrekstur. Þegar menn áttuðu sig á alvarleika hungursneyðarinnar var þó reynt að bæta úr. Er talið að um ein milljón manna hafa dáið úr hungri í Eþíópíu á árunum 1983-1985.
Þrettánda júlí 1985 hélt tónlistarfólk víðsvegar að úr heiminum styrktartónleika, svokallaða Live Aid tónleika þar sem ágóðinn átti að renna til hjálparstarfs í Eþíópíu. Voru það fyrstu tónleikarnir af því tagi.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær missti Eþíópía sjálfstæði sitt?

2. Hverjir hernámu Eþíópíu árið 1936?

3. Hvenær fékk Eþíópía aftur sjálfstæði?

4. Hvaða land sem áður var hluti af Eþíópíu fékk sjálfstæði árið 1993?

5. Af hverju neituðu vestræn ríki í fyrstu að hjálpa Eþíópíu þegar hungursneyð geisaði þar?

6. Hvað kölluðust tónleikarnir sem haldnir voru til styrktar hungruðum í Eþíópíu?