Kaflar

1997: Stríð í Tjetjeníu

Frá falli Sovétríkjanna höfðu margir Tjetjenar óskað eftir sjálfstæði frá Rússlandi. Ólíkt því sem gerðist í Georgíu, Eystrasaltslöndunum og Úkraínu voru Rússar ekki á því að láta Tjetjeníu af hendi.
Tjetjenar lýstu samt yfir sjálfstæði 1991. Rússar mótmæltu og frá 1994-1996 stóðu frelsisherir Tjetjeníu í stríði við Rússa og Tjetjena sem vildu áfram vera undir Rússum. Tjetjenar vörðust árásum Rússa af mikilli hörku og stunduðu hatramman skæruhernað víða í Rússlandi í baráttu sinni.
Í júlí 1997 drógu Rússar heri sína út úr Tjetjeníu en þrátt fyrir það voru átök í landinu. Í september 1999 voru sprengingar víða í Rússlandi sem stjórnvöld sögðu vera af völdum Tjetjena. Í kjölfarið gerðu Rússar loftárásir á borgina Grosní og lögðu hana í rúst.
Í október 2002 réðust tjetjenskir skæruliðar inn í leikhús í Moskvu og héldu 700 manns í gíslingu. Þar dóu 129 gíslar og 41 úr röðum skæruliða. Árið 2004 tóku Tjetjenar yfir skóla í Rússlandi og þar létust 300 manns, þar á meðal yfir 180 börn.
Frá árinu 2003 hefur Tjetjenía verið undir Rússum en Tjetjenar hafa þó ákveðna sjálfstjórn í eigin málum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær lýsti Tjetjenía yfir sjálfstæði?

2. Hvernig var ástandið í Tjetjeníu á árunum 1994-1996?

3. Hvenær drógu Rússar heri sína út úr Tjetjeníu?

4. Hvernig brugðust Rússar við skæruhernaði Tjetjena árið 1999?

5. Hvernig er stjórn Tjetjeníu háttað í dag?