Kaflar
1972: Fjöldamorð á ólympíuleikunum í Berlín

Leikarnir voru settir 26. ágúst við mikinn fögnuð en 5. september réðust átta menn inn í búðir Ísraela, skutu tvo til bana og handtóku 9 aðra. Tilheyrðu þessir menn palestínska hryðjuverkahópnum Svarta september. Kröfðust þeir að 235 palestínskir fangar í haldi Ísraela yrðu látnir lausir.
Var reynt að semja en Ísraelar þverneituðu að verða við kröfum um frelsun fanganna.
Á endanum var ákveðið að leiða hryðjuverkamennina í gildru með því að bjóða þeim leið til að komast burt. Það gekk ekki eftir og í kjölfarið drápu þeir alla gíslana. Af þeim sjálfum létust fimm en þrír voru handteknir.
Á þessum ólympíuleikum setti bandaríski sundkappinn Mark Spitz heimsmet er hann vann þar til sjö gullverðlauna. Þar sem Spitz var af gyðingaættum var hann beðinn um að vera ekki í lokahófi leikanna því óttast var um velferð hans eftir það sem á undan var gengið.