Kaflar

1973: Fyrsti farsíminn kynntur til sögunnar

Það hefur lengi verið talið að Alexander Graham Bell hafi fundið upp símann árið 1876 í Boston. Árið 2002 var það þó dregið í efa, því nú hefur mönnum orðið ljóst að grunntæknin var fundin upp af Ítala að nafni Antonio Meucci. Hann uppgötvaði að hægt væri að flytja hljóð með koparvírum.  Hann fékk einka­leyfi fyr­ir búnaðinum árið 1871 en hafði ekki efni á að end­ur­nýja leyfið.
Alexander Graham Bell deildi um tíma verk­stæði með Meucci og kynntist tækninni í gegnum hann. Hann fékk einka­leyfi fyr­ir sím­an­um tveim­ur árum síðar og gerði samn­ing við Western Uni­on í fram­haldi. Ári síðar voru um 3000 manns farnir að nota síma. Árið 1881 var búið að þróa tæknina þannig að hægt var að tala í gegnum síma langar leiðir.
Síminn varð á örskömmum tíma mikið þarfaþing, og nú finnst okkur hreint út sagt ótrúlegt að hugsa okkur lífið án hans.
Það var maður að nafni Martin Cooper sem á heiðurinn af fyrsta farsímanum sem var kallaður Motorola Dyna TAC 8000X. Það var árið 1973.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver er talinn hafa fundið upp símann?

2. Hvaða ár var síminn kynntur til sögunnar?

3. Af hverju missti Antonio Meucci einkaleyfi sitt?

4. Hvað voru margir farnir að nota síma um 1877?

5. Fyrir hvað er Martin Cooper þekktur?