Kaflar
1989: Fall Berlínarmúrsins

Varð múrinn brátt að tákni fyrir kalda stríðið sem átti sér stað milli austurs og vesturs.
Rekja má fall múrsins til þess tíma þegar Mikhaíl Gorbatsjev varð leiðtogi Sovétríkjanna árið 1985. Breytingarnar sem hann boðaði í heimalandinu höfðu áhrif víða og í maí 1989 ákvað ungverski forsætisráðherrann Miklos Nemeth að láta taka niður vírgirðinguna á landamærum Ungverjalands og Austurríkis.
Fjórða nóvember sama ár mótmæltu milljónir manna í miðborg Austur-Þýskalands því að geta ekki ferðast til annarra landa og 9. september var íbúum Austur-Berlínar leyft nánast ótakmarkað að fara yfir til Vestur-Berlínar.
Þann 10. september var svo byrjað að rífa niður hluta múrsins. Á næstu vikum mættu íbúar beggja vegna með verkfæri og brutu múrinn niður.