Kaflar
1987: Ýmislegt

Þá var fyrsta konan vígð inn í Frægðarhöll Rokksins á þessu ári. Það var söngkonan, lagahöfundurinn og píanistinn Aretha Franklin (1942-2018). Hafa plötur hennar selst í yfir 75 milljónum eintaka og er hún þar með komin í hóp með söluhæsta tónlistarfólki allra tíma. Af kunnum lögum sem hún söng má nefna: Respect, Think, Say a Little Prayer for Me og (You Make Me Feel Like) A Natural Woman.
Þá var söngkonan og lagahöfundurinn Carole King (1940- ) vígð inn frægðarhöll lagahöfunda á þessu ári. Hún hefur samið að minnsta kosti 118 lög sem náð hafa hátt á vinsældalistum. Af kunnum lögum má nefna: You´ve Got a Friend, The Loco-Motion, Beautiful, It Might As Well Rain Until September, Where You Lead I Will Follow, Tapestry, Take Good Care of My Baby og Up On The Roof.