Kaflar

5. Gunnlaugur hittir jarlinn í Noregi

Á þessum tíma [skömmu eftir árið 1000] var Eiríkur Hákonarson jarl yfir Noregi. Við hirðina var þá Skúli, sonur Þorsteins á Borg, bróðir Helgu fögru. Gunnlaugur gekk fyrir jarlinn og þeir voru tólf saman. Ungi maðurinn bar sig vel, enda var hann vel búinn, í gráum kyrtli og hvítum leistabrókum. En það var kýli á fæti hans niðri á ristinni, og úr því freyddi blóð og gröftur.
Jarl spurði Gunnlaug hver hann væri og Gunnlaugur sagði honum nafn sitt og ætt. Skúli bað jarl að taka vel við Gunnlaugi því að hann væri sonur hins besta manns á Íslandi og fóstbróðir sinn.
„Hvað er að fæti þínum, Íslendingur?“ spurði jarl.
„Sullur er á, herra.“
„Og gekkst þú þó ekki haltur,“ sagði jarl.
Þá svaraði Gunnlaugur: „Eigi skal haltur ganga meðan báðir fætur eru jafnlangir.“
Hirðmaður jarls, Þórir að nafni, sagði þá: „Þessi rembist nú mikið, Íslendingurinn.“
Gunnlaugur leit við honum og svaraði með illkvittnislegri vísu þar sem hann kallaði hirðmanninn „illan og svartan“. Þórir hirðmaður greip öxi sína og ætlaði að höggva til Gunnlaugs en jarlinn bað hann að hafa sig hægan og spurði Gunnlaug hve gamall hann væri. Hann sagðist vera átján vetra. Þá sagði jarl: „Það læt ég um mælt að þú verðir eigi annarra átján.“
Gunnlaugur móðgaði jarlinn með svari sínu þar sem hann sagðist að vona að jarlinn fengi ekki sama dauðdaga og Hákon jarl faðir hans [en þræll hafði skorið Hákon jarl á háls í svínahúsi]. Eiríkur jarl varð rauður sem blóð og vildi láta handtaka Gunnlaug. En þá gekk Skúli Þorsteinsson fyrir jarl og tókst að fá hann til að leyfa Gunnlaugi að fara brott. Skúli kom honum á skip til Englands.
leistabrækur: brækur með áföstum sokkum
sullur
: kýli, ígerð

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Minnst er á íslenskan hirðmann hjá Eiríki jarli í Niðarósi. Hvernig var hann tengdur Helgu fögru á Borg?
2. Hver mælti þessi frægu orð: „Eigi skal haltur ganga meðan báðir fætur eru jafnlangir.“
3. Hvers vegna reiddist Gunnlaugur Eiríki jarli?
4. Hver var „illur og svartur“ að áliti Gunnlaugs ormstungu?
5. Hvernig fór fyrir Hákoni jarli, föður Eiríks jarls?
6. Hver bjargaði Gunnlaugi frá því að vera handtekinn?
7. Hver var spá Eiríks jarls um Gunnlaug?