Kaflar

4. Gunnlaugur heldur brott. Helga verður „heitkona“ Gunnlaugs

Á Mosfelli í Mosfellsdal bjó goðorðsmaðurinn Önundur með Geirnýju konu sinni. Einn sona þeirra var Hrafn, manna fríðastur og skáld gott. Þegar hann var vaxinn úr grasi fór hann landa á milli og líkaði mönnum vel við hann.
Á þessum tíma var kristni lögtekin á Íslandi [árið 1000] og allt fólk hafnaði gömlum átrúnaði. 
Sex vetur liðu og var Gunnlaugur ýmist með Þorsteini á Borg eða föður sínum á Gilsbakka, og þeim feðgum samdi nú betur en áður. Gunnlaugur fór eitt sinn norður í Vatnsdal með frænda sínum. Á heimleiðinni báðust þeir gistingar á bæ einum. Um morguninn sló Gunnlaugur smalamanninn á bænum í óvit en sá hafði í óleyfi riðið hesti hans. Bóndinn ætlaði að krefja Gunnlaug um háar bætur en guggnaði á því eftir að Gunnlaugur hafði ort vísu og hótað honum öllu illu – og þeir sættust á lága sekt. 
Nú vill Gunnlaugur halda utan, og Illugi faðir hans kaupir helming í skipi handa honum. Þorsteinn á Borg býður Gunnlaugi góðar gjafir að skilnaði. Gunnlaugur vill ekki þiggja þær en segir: „Hví býður þú mér eigi það sem ég vil þiggja?“
„Hvað er það?“ segir Þorsteinn.
Gunnlaugur mælti: „Helga hin fagra dóttir þín.“  
Þorsteinn vill engu lofa, honum finnst Gunnlaugur vera „óráðinn“ og bendir honum á að hann sé að fara af landi brott en þykist á sama tíma vilja ganga í hjónaband. Gunnlaugur gefst ekki upp og fer til föður síns á Gilsbakka, og saman fara þeir til Þorsteins að Borg og biðja Helgu til handa Gunnlaugi. Þorsteinn fellst loks á að Helga verði „heitkona“ Gunnlaugs, en verði hann ekki kominn heim að þremur árum liðnum skuli hann (þ.e. Þorsteinn) vera laus allra mála. Gunnlaugur fer utan og kemur til Noregs við Niðarós, þá átján ára.
goðorðsmaður: goði, höfðingi sem fer með mannaforráð í héraði og hefur einnig embættisskyldur á þingum_slá e-n í óvit:_ rota (í sögunni er notað orðið ljósta, þátíð laust: Gunnlaugur laust smalamanninn í óvit)
óráðinn: (hér) reynslulaus, óstaðfastur (of ungur til að vita hvað hann vill)_
heitkona_: kona sem hefur heitið því að giftast e-m (þetta er samt ekki opinber trúlofun)

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Þegar Gunnlaugur er á unglingsárum verða mikil umskipti í menningarmálum á Íslandi. Hvaða breyting varð?
2. Hvers vegna sló Gunnlaugur smalamann í óvit?
3. Það er eins og Þorsteinn beri ekki fullkomið traust til Gunnlaugs sem tilvonandi tengdasonar. Hvaða lýsingarorð notar hann um unga manninn?
4. Hvers kyns var svanurinn í draumi Þorsteins Egilssonar?
5. Hvaðan var Hrafn Önundarson?
6. Hvaða lýsingarorð eiga vel við um Gunnlaug með tilliti til samskipta hans við bóndann í Vatnsdal?
7. Í hverju fólst samkomulag þeirra Illuga á Gilsbakka og Þorsteins á Borg?
8. Hve gamall var Gunnlaugur þegar hann hélt af landi brott?
9. Hvar kom Gunnlaugur að landi í Noregi?