Kaflar

3. Gunnlaugur ormstunga fer að heiman og kynnist Helgu

Á Gilsbakka í Hvítársíðu bjó Illugi svarti, mikill höfðingi. Eitt barna hans og Ingibjargar var Gunnlaugur, svarteygur og nokkuð nefljótur en herðabreiður og miðmjór og mikið skáld og gjarn á að yrkja níð; því fékk hann viðurnefnið ormstunga. Þegar Gunnlaugur var tólf vetra vildi hann halda utan og kynnast siðum annarra þjóða. Illugi tók því ekki vel. Gunnlaugur tók þá til sinna ráða og bjó sig undir að fara brott á laun með varning úr búri föður síns. Illugi stöðvaði son sinn í þessum áformum og bar varninginn inn. Gunnlaugur reið þá brott og kom um kvöldið til Þorsteins á Borg. Þorsteinn tók hann að sér og kenndi honum lögspeki. Þau Gunnlaugur og Helga voru jafnaldrar og skemmtu sér gjarnan við tafl og leik. Í sögunni segir: „Helga var svo fögur að það er sögn fróðra manna að hún hafi fegurst kona verið á Íslandi. Hár hennar var svo mikið að það mátti hylja hana alla, og svo fagurt sem gull.“
Eitt sinn bað Gunnlaugur Þorstein að kenna sér hvernig ætti, samkvæmt réttum lögum,  að fastna sér konu, þ.e. að fá leyfi hjá föður stúlku til að giftast henni. Þorsteinn tók því vel og kenndi honum hvernig þetta væri gert. Gunnlaugur vildi þá setja þetta atferli  á svið og láta eins og hann væri í raun og veru að biðja Helgu. Þorsteinn var tregur til að fallast á þennan leik en lét þó til leiðast. Gunnlaugur fastnaði sér Helgu og nefndi sér votta, og menn skemmtu sér yfir þessu.
níð (hér): niðrandi skáldskapur
á laun: með leynd
lögspeki: lögfræði
fastna sér konu: fá loforð föður hennar til að ganga að eiga hana

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvers vegna fékk Gunnlaugur viðurnefnið „ormstunga“?
2. Hvernig voru augun í Gunnlaugi á litinn?
3. Gunnlaugur var skáld. En hvaða nám lagði hann stund á hjá Þorsteini á Borg?
4. Hverju líktist hárið á Helgu?
5. Gunnlaugur hafði greinilega áhuga á lögum. Hvernig reynir hann að nýta sér lagaþekkingu sína á þeim tíma sem hann dvelur hjá Þorsteini á Borg?
6. Hvað reyndi Gunnlaugur að gera 12 ára gamall sem var andstætt lögum?
7. Hvers vegna fór Gunnlaugur ekki til útlanda þegar hann var 12 ára eins og hann hafði ætlað sér?