Kaflar

9. Gunnlaugur fær fréttir af Helgu. Draumur Hrafns

Aðeins eitt skip var ófarið til Íslands þetta haust frá Noregi og fékk Gunnlaugur far með því. Hallfreður vandræðaskáld var þar stýrimaður. Gunnlaugur hafði þá þegar fengið óljósar fréttir af bónorði Hrafns til Helgu fögru. Hallfreður sagði honum það sem hann hafði frétt og gat þess meðal annars að margir teldu Hrafn „eigi óröskari“ mann en Gunnlaug. Gunnlaugur kvað þá vísu og sagði þar að hann vildi heldur deyja ungur en vera ekki álitinn jafnoki Hrafns. Hann orti aðra vísu og sagði þar að það væri ekki Hrafni sæmandi að ætla að ná ástum Helgu sem frá æskuárum hefði elskað hann (þ.e. Gunnlaug).
Þeir tóku land á Melrakkasléttu. Gunnlaugur glímdi þar við bóndason sem Þórður hét og felldi hann en féll einnig sjálfur því að fótur hans „stökk úr liði“. Þórður bóndasonur spáði þá illa fyrir Gunnlaugi og sagði að brúðkaup Helgu og Hrafns stæði fyrir dyrum. Gunnlaugur ríður suður í Borgarfjörð og kemur að Gilsbakka sama dag og setið er að brúðkaupinu á Borg. Hann vildi þá strax ríða þangað en vegna fótarmeinsins varð ekki af því.
En það er af Helgu að segja að hún var heldur döpur í brúðkaupsveislunni. Og eftir brúðkaupið fór Hrafn með hana suður að Mosfelli.
Skömmu síðar dreymdi Hrafn draum og sagði Helgu innihaldið í vísu: honum fannst hann vera höggvinn sverði í faðmi hennar og að hún hefði ekki grátið. Helgu fór nú að gruna margt og sagði: „Þú hefur svikið mig illa, og mun Gunnlaugur kominn til landsins,“ og grét Helga þá mjög. Grunur hennar reyndist réttur, og þegar hún hafði sannspurt heimkomu Gunnlaugs gerðist hún mjög stirð við Hrafn. Hann gat því ekki haldið henni á Mosfelli. Þau fóru þá að Borg, og hann fékk lítið að njóta samvista við hana.
Hallfreður vandræðaskáld var frægt íslenskt skáld og var m.a. við hirð Ólafs Noregskonungs Tryggvasonar sem ríkti á árunum 995–1000 (en þegar hér er komið sögu hefur fyrrnefndur Eiríkur jarl ráðið ríkjum í Noregi í nokkur ár). Til er sérstök saga af Hallfreði vandræðaskáldi._
það er honum ekki sæmandi_: honum er enginn sómi að því; það yrði honum álitshnekkir

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Með hverjum fékk Gunnlaugur far til Íslands?
2. Hvernig stóð á því að Gunnlaugur dreif sig ekki til Íslands þegar veturnir þrír voru liðnir?
3. Hallfreður vandræðaskáld segir Gunnlaugi að rætt sé um að Hrafn sé „röskari“ en hann. Hvað er til marks um að Gunnlaugi þyki þetta afleitt?
4. Setjum svo að Gunnlaugur hefði náð landi í Borgarfirði en ekki Melrakkasléttu á þeim tíma sem talað er um í textanum. Hverju kynni það að hafa breytt?
5. Hvaða viðbótarfréttir hafði Þórður bóndasonur á Melrakkasléttu að færa Gunnlaugi af Helgu og Hrafni?
6. Er nokkuð sagt um líðan Helgu í veislunni?
7. Hvað fór Helgu að gruna eftir að Hrafn sagði henni drauminn?
8. Helga fékk staðfest að Gunnlaugur væri kominn til Íslands. Hvaða áhrif hafði það á samband Helgu og Hrafns?