Kaflar
7. . Gunnlaugur tefst í útlöndum
Snemma um vorið hélt Gunnlaugur til Svíþjóðar þar sem Ólafur konungur sænski réð ríkjum. Með Ólafi konungi var þá Hrafn skáld Önundarson frá Mosfelli sem fyrr var nefndur. Konungur vildi fá álit Hrafns á Gunnlaugi, og hrósaði Hrafn samlanda sínum. Íslendingarnir tveir tóku tal saman og fór vel á með þeim. Stuttu síðar vildi Gunnlaugur flytja konungi kvæði, en Hrafn vildi þá gera hið sama, og þeir urðu ekki ásáttir um hvor þeirra ætti að vera á undan. Gunnlaugur segist vera af göfugri ættum en Hrafn. Hrafn vill láta konung ráða og konungur úrskurðar að Gunnlaugur skuli flytja kvæði sitt fyrr af því að hann sé ör í skapi og óþolinmóður.
Gunnlaugur flytur konungi drápu. Konungur vill fá álit Hrafns á kvæðinu og Hrafn segir m.a. að það sé stirðkveðið líkt og Gunnlaugur sjálfur í skaplyndi. Nú flytur Hrafn kvæði sitt, og Gunnlaugur þarf að segja álit sitt á því. Hann segir kvæðið fagurt eins og Hrafn sé sjálfur, en yfirbragðslítið. Hann spyr líka hvers vegna Hrafn hafi ort flokk en ekki drápu um konunginn [í drápu er endurtekið „stef“ og þótti meiri virðing í því fólgin]. Hrafni sárnar og segir að þessi orð verði rifjuð upp síðar og segist ætla að launa Gunnlaugi framkomu hans. Gunnlaugur svarar með hroka.
Hrafn fer brott þetta sama vor. Hann heldur til Noregs og siglir þaðan til Íslands og lendir í Leiruvogi og var heima með föður sínum um veturinn. Sumarið eftir fer hann til alþingis og hyggst nú biðja Helgu fögru sér til konu og hefna sín þannig á Gunnlaugi.
drápa: kvæði þar sem ein eða fleiri ljóðlínur (stef) eru endurteknar með vissu millibili
stirðkveðið: stirðlega ort
yfirbragðslítið: sviplítið
flokkur: kvæði sem er ekki með endurteknu stefi (stefjum)
Leiruvogur (Leirvogur í Mosfellssveit): Hrafn lendir sem sagt skammt frá heimili sínu, Mosfelli í Mosfellsdal
stirðkveðið: stirðlega ort
yfirbragðslítið: sviplítið
flokkur: kvæði sem er ekki með endurteknu stefi (stefjum)
Leiruvogur (Leirvogur í Mosfellssveit): Hrafn lendir sem sagt skammt frá heimili sínu, Mosfelli í Mosfellsdal
