Kaflar

15. Hatshepsut

Hatshepsut var einn merkasti stjórnandi Egyptalands hins forna og ein af fáum konum sem tóku sér titil faraós. Hún ríkti á 18. ættarveldinu, frá því um 1479 f.Kr. til 1458 f.Kr., og á hennar tímum ríkti friður og uppbygging í Egyptalandi.
Hatshepsut var dóttir Tútmósis I og giftist hálfbróður sínum, Tútmósis II. Þegar hann lést stóð sonur hans, Tútmósis III., til að erfa veldissprotann en hann var þá barn. Það kom því í hlut Hatshepsut að stýra landinu fyrir hann þangað til Tútmósis þriðji næði aldri.
Fyrst stýrði hún sem nokkurs konar ríkisstjóri í hans nafni, en tók sér síðan sjálf titil faraós og stjórnaði í eigin nafni.
Hún klæddist oft karlmannsfötum og setti upp gerviskegg til að undirstrika lögmæti sitt.
Stjórnartíð Hatshepsut einkenndist af friði og mikilli uppbyggingu. Hún lét reisa stórbrotin hof og minnisvarða, þar á meðal sitt eigið grafhýsi í Deir el-Bahri, sem er ein frægasta bygging Forn-Egyptalands. Hofið er með súlnaröðum og stórum stöllum sem sameina náttúru og manngerðan arkitektúr á einstaklega glæsilegan hátt.
Hatshepsut lagði einnig áherslu á verslun og utanríkisviðskipti fremur en hernað. Fræg er ferð hennar til Puntlands, sem var land suður af Egyptalandi, þar sem Egyptar fengu m.a. gull, ilmefni og framandi plöntur. Margir faraóar hefðu eflaust ráðist á Puntland og tekið það sem þeir girntust en Hatshepsut sigldi þangað á fimm skipum, nánast varnarlaus, til að eiga heiðarleg viðskipti við þessa nágrannaþjóð.
Eftir dauða Hatshepsut reyndi Tútmósis III. að þurrka út minningu hennar. Nafn hennar var höggvið af mörgum minnisvörðum og styttur af henni eyðilagðar. Þrátt fyrir þetta hefur arfleifð hennar lifað og hennar er í dag minnst sem eins framsýnasta faraós fornaldar.
Hatshepsut sýndi að kona gat stjórnað stórveldi af styrk og visku og verk hennar standa enn sem tákn um kraft og hæfileika kvenna í sögunni.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvað ríkti Hatshepsut lengi sem faraó?
2. Hvenær komst Hatshepsut til valda?
3. Hver var faðir Hatshepsut?
4. Hverjum giftist Hatshepsut?
5. Hvað einkenndi stjórnartíð Hatshepsut?
6. Hvað reyndi Tútmósis þriðji að gera eftir dauða Hatshepsut?