Kaflar

6. Píramídinn mikli í Giza

Píramídinn mikli í Giza í Egyptalandi er elsta mannvirkið af hinum svokölluðu sjö undrum veraldar og það eina þeirra sem enn stendur. Þótt oft sé talað um alla þrjá píramídana á Giza-svæðinu sem hluta af heimsundrunum sjö, er það samt aðeins sá stærsti sem telst til þeirra. Hann er ekki aðeins stærstur píramídanna, heldur líka elstur. Hann er talinn vera frá því um 2580 fyrir Krist. Var hann stærsta mannvirki heims í meira en 40 aldir. Hann er byggður úr kalksteini með fínpússuðu yfirborðslagi, sem er þó að langmestu leyti horfið í dag.
Talið er að þrjár kynslóðir faraóa af fjórðu konungsættinni hafi reist píramídana, en veldistími þeirrar ættar er jafnan talinn gullöld Egyptalands til forna. Faraóarnir þrír hétu Khufu eða Keops (dó u.þ.b. 2566 fyrir Krist), Khafre (dó u.þ.b. 2532 fyrir Krist) og Menakaure (dó u.þ.b. 2503 fyrir Krist). Keopspíramídinn er nefndur eftir egypska faraóinum Keops (Khufu) og er almennt talinn vera gröf hans.
Keopspíramídinn er 137 m á hæð í dag en mun upphaflega hafa verið 146 m. Á hann vantar toppsteininn en einnig hefur hann veðrast í gegnum árin. Hver grunnlína er 233 metrar, svo flatarmálið er 54.289 m². Píramídinn er talinn vega um 6 milljón tonn. Mannvirkið er talið byggt úr u.þ.b. 2,5 milljónum kalksteinblokka sem vega að meðaltali um 2,5 tonn en steinarnir eru misstórir og minnka eftir því sem ofar dregur. Þyngstu steinarnir í píramídanum eru granítsteinar sem koma frá námu í Aswan sem er um 870 kílómetra frá Giza. Þessir steinar eru taldir vega allt að 80 tonnum og eru staðsettir efst innan í píramídanum.
Í dag telja fræðimenn að líklega hafi bygging píramídans tekið um 14-20 ár og að henni hafi unnið um 30.000–50.000 verkamenn. Í upphafi var píramídinn klæddur sléttum og slípuðum hvítum kalksteini en í dag er svo til ekkert eftir af þeirri klæðningu.
Mikið verkvit liggur að baki byggingar píramídans og væri erfitt að reisa hann í dag. Byggingin snýr nákvæmlega í höfuðáttirnar. Grunnlínur hliðanna eru svo til jafnar á allar hliðar. Einnig eru réttu hornin á grunnfletinum nákvæm. Efsti punktur píramídans er beint yfir miðpunkti grunnflatarins.
Þeir sem hönnuðu píramídann hafa greinilega kunnað flókna stærðfræði og mjög sennilega þekkt stærðina pí (π = 3,1416).

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Í hvaða landi er Píramídinn mikli í Giza?
2. Hvenær er talið að Píramídinn mikli hafi verið reistur?
3. Hver er talinn hafa verið tilgangurinn með píramídanum?
4. Grafhýsi hvers var Píramídinn mikli?
5. Hvað er Píramídinn mikli talinn hafa verið hár í upphafi?
6. Hvað eru þyngstu steinarnir í píramídanum álitnir þungir?
7. Hvað er talið að margir verkamenn hafi unnið að píramídanum?
8. Hvað vitum við um þá sem hönnuðu Píramídann mikla?