Kaflar

12. Mínóamenningin á Krít

Mínóamenningin er talin hafa verið fyrsta háþróaða menning Evrópu, en hún blómstraði á eyjunni Krít frá því um það bil 3000 til 1400 f.Kr. Hún fékk nafn sitt frá hinum goðsagnakennda Mínosi konungi á Krít sem samkvæmt grískri goðafræði lét Dedalus byggja þar völundarhús til að hýsa afkvæmi Mínosar, skaðræðisskepnuna Mínótárusinn sem var hálfur maður og hálft naut.
Mínóamenningin þróaðist úr því að vera frumstæð sveitamenning yfir í öflugt borgar- og verslunarveldi. Höfuðstaður Mínóamenningarinnar var borgin Knossos á Krít, en af öðrum borgum má nefna Phaistos, Malia og Zakros. Þar voru reistar glæsilegar hallir sem þjónuðu ekki aðeins sem bústaðir stjórnenda, heldur einnig sem stjórnsýslu-, trúar- og menningarmiðstöðvar. Hallirnar voru skreyttar litríkum veggmyndum (freskum) sem sýndu daglegt líf, dýr, dansa og trúarathafnir og báru vitni um friðsælt og listrænt samfélag.
Mínóar byggðu efnahag sinn á verslun og siglingum. Þeir voru góðir sjómenn og höfðu víðtæk viðskipti við Egyptaland, Miðausturlönd og Grikkland. Þeir fluttu út ólífuolíu, vín og leirmuni og fengu í staðinn málma og önnur hráefni sem þá skorti. Þeir höfðu einnig sitt eigið ritkerfi, sem kallast línuletur A, en það hefur aldrei verið fullkomlega ráðið. Síðar tók menningin upp þróaðri stafsetningu, svokallað línuletur B, sem varð grunnur að grísku ritmáli.
Trú Mínóa snerist mikið um frjósemi og náttúruöflin. Myndir sýna kvenlegar gyðjur, stundum með slöngur í höndum; einnig hvíldi mikil helgi yfir nautum. Á tyllidögum stunduðu bæði menn og konur það að stökkva yfir naut.
Um 1450 f.Kr. tók Mínóamenningunni á Krít að hnigna, líklega vegna samspils eldgoss á Santorini, jarðskjálfta og innrása frá meginlandi Grikklands af hálfu Mýkenumanna.
Þrátt fyrir fall sitt hafði Mínóamenningin djúp áhrif á gríska menningu, bæði í byggingarlist, listsköpun og trúarhugmyndum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvar blómstraði Mínóamenningin?
2. Hvaða skepna hafðist við í völundarhúsinu sem Mínos lét byggja?
3. Hvaða borg var höfuðborg Mínóamenningarinnar?
4. Á hverju byggðu Mínóar velmegun sína?
5. Hverjar voru helstu útflutningsvörur Mínóa?
6. Hvað kallast fyrsta letur Mínóa?
7. Hvenær fór Mínóamenningunni að hnigna?