Kaflar

4. Mesópótamía og Súmerar

Elsta samfélag (ríki) manna sem sögur fara af var samfélag sem varð til á milli stórfljótanna Efrat og Tígris. Þar eru nú löndin Írak, Sýrland og Tyrkland. Var þetta svæði kallað Mesópótamía. Orðið Mesópótamía merkir á forngrísku landið milli fljótanna. Þetta samfélag er talið hafa orðið til í kringum 5000 fyrir Krist. Það stóð yfir með breytilegu sniði til ársins 333 fyrir Krist.
Landið á milli fljótanna Efrat og Tígris gat gefið af sér mikinn mat til að fæða fjölda manna. Það var frjósamt og eftir að menn lærðu að gera áveitur varð það enn frjósamara til að rækta matvæli. Þá var þar mikið af döðlupálmum sem gáfu af sér mat og timbur. Nóg var af fiski og fuglum til að veiða.
Fyrsta þjóðin til að mynda samfélag í Mesópótamíu kallaðist Súmerar. Þeir réðu þar í um 2700 ár eða til ársins 2330 fyrir Krist. Súmerar byggðu til að mynda fyrstu borgirnar sem vitað er um. Þekktar borgir Súmera voru Úr, Úruk, Eridu og Nippur. Í miðjum borgunum reistu Súmerar stórar byggingar sem kallast siggurats en það voru hof þar sem þeir tignuðu guði sína.
Súmerar voru merkilegt fólk og fundu upp alls kyns hluti. Þeir bjuggu til áveitur til að veita vatni eftir skurðum svo jarðvegurinn yrði frjósamari til ræktunar. Þeir bjuggu til ritmál og notuðu leirtöflur til að skrifa á. Er það fyrsta ritmálið sem vitað er um. Það kallast fleygrúnir. Það var í kringum 3300 fyrir Krist. Þá munu Súmerar hafa fundið upp hjólið til að setja undir vagna.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða lönd eru nú þar sem Mesópótamía var?
2. Milli hvaða stórfljóta liggur Mesópótamía?
3. Hver var fyrsta þjóðin til að mynda samfélag í Mesópótamíu svo vitað sé?
4. Hvað voru Úr, Úruk, Eridu og Nippur?
5. Hvað kölluðust hof Súmera?
6. Hvað kallast ritmál Súmera?