Kaflar
1958: Ýmislegt

Sjötta febrúar var knattspyrnuliðið Manchester United á leið heim til Englands eftir að hafa leikið við Red Star Belgrade í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar. Flugvélin þurfti að lenda í München til að bæta við eldsneyti. Í flugtakinu fór vélin út af flugbrautinni og lenti á húsi og varð af mikil sprenging. Af fjörutíu og fjórum sem voru um borð létust tuttugu og þrír og af þeim sjö leikmenn liðsins.
Tuttugasta febrúar var fyrsta hljómplata söngvarans og lagahöfundarins Buddy Holly gefin út. Á plötunni voru fjórir smellir: Words of Love, Peggy Sue, I´m Gonna Love You Too og Rave On. Buddy Holly lést þriðja febrúar 1959 í flugslysi.
Í mars varð Nikita Khrushchev leiðtogi Sovétríkjanna. Khrushchev kom mörgum á óvart þegar hann gagnrýndi og jafnvel úthrópaði grimmdarverk Stalíns forvera síns.
Þann 16. júní voru Imre Nagy og aðrir leiðtogar ungversku byltingarinnar 1956 hengdir fyrir landráð eftir leynileg réttarhöld.
Tuttugasta og þriðja október hlaut sovéski rithöfundurinn Boris Pasternak bókmenntaverðlaun Nóbels. Kommúnistaflokkurinn í Sovétríkjunum hafði bannað útgáfu sögunnar Sívagó læknir eftir hann en handritinu var smyglað til Ítalíu þar sem sagan kom út 1957. Var Pasternak neyddur til að hafna verðlaununum af stjórnvöldum.