Kaflar
1957: Gana og Kongó öðlast sjálfstæði

Frá 1913 hafði heimsálfan Afríka verið undir nýlenduvaldi sjö Evrópuþjóða. Evrópa komst þannig yfir gríðarlegt magn hráefnis og ódýrt vinnuafl. Bretar og Frakkar stjórnuðu flestum svæðum. Aðrar nýlenduþjóðir í Afríku voru Belgía, Þýskaland, Ítalía, Portúgal og Spánn. Voru íbúarnir víða beittir miklu harðræði af nýlenduherrunum.
Eftir síðari heimsstyrjöldina fóru Afríkubúar að leitast við að brjótast undan oki nýlenduveldanna sem voru ekki á því að sleppa tökunum. Fyrsta landið til að öðlast sjálfstæði var Gana sem hafði verið undir valdi Breta. Gana öðlaðist sjálfstæði árið 1957. Var það ekki án átaka og er rauði liturinn í fána þeirra tákn fyrir blóð þeirra sem féllu í baráttunni fyrir frelsi.
Belgar sem höfðu ráðið ríkjum í Kongó sættust á að láta landið af hendi árið 1960. Eftir kosningar meðal heimamanna braust út borgarastyrjöld þar í landi sem stóð í fimm ár eða til 1965 þegar hershöfðingjanum Mobutu tókst að ná völdum. Hann endurnefndi landið Zaire og ríkti með harðri hendi í 30 ár.