Kaflar

1959: Castro kemst til valda á Kúbu

Eftir síðari heimsstyrjöldina var víða mikil ólga meðal þjóða Suður-Ameríku sem vildu aukið frelsi. Argentíski byltingaforinginn Che Guevara átti eftir að koma víða við sögu í þeim umbótatilraunum. Árið 1954 tók hann þátt í tilraun forsetans Jacabo Armenz í Gvatemala til að koma á fót bættri stjórn í landinu. Sú tilraun fór út um þúfur þegar forsetanum var steypt af stóli með hjálp Bandaríkjamanna.
Þá flýði Che Guevara til Mexíkó þar sem hann hitti Fidel Castro. Castro var þar í sjálfskipaðri útlegð eftir að hafa reynt að steypa kúbverska einræðisherranum Batista af stóli árið 1953.
Castro reyndi aftur árið 1956 og var Che Guevara þá með honum. Ekki gekk sú bylting vel í fyrstu, en næstu þrjú árin hélt Castro uppi skæruhernaði gegn Batista. Það var svo hinn 1. janúar árið 1959 að her Castros bar loks sigurorð af herjum Batista sem flýði.
Í kjölfarið varð Castro forseti nýrrar kommúnistastjórnar þar og hélt hann þeirri stöðu fram til ársins 2008.
Það er af Che Guevara að segja að árið 1966 hélt hann til Bólivíu í þeim tilgangi að styðja byltingu þar en þar var hann handtekinn og tekinn af lífi 7. október 1967.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvernig var ástandið víða í Suður-Ameríku eftir síðari heimsstyrjöldina?
2. Hvar reyndi Che Guevara að hafa áhrif árið 1954?
3. Af hverju mistókst fyrsta byltingartilraun Che Guevara?
4. Hvern hitti Che Guevara í Mexíkó?
5. Hvar var Batista einræðisherra?
6. Hvenær tókst Castro að hrekja Batista frá völdum?
7. Hvers konar stjórn kom Castro á fót á Kúbu?
8. Hvað varð um Che Guevara?