Kaflar

1965: Ýmislegt

Þann átjánda janúar fékk Gambía sjálfstæði frá Bretum.
Tuttugasta og þriðja janúar komst lagið Downtown með Petula Clark í efsta sæti bandaríska vinsældalistans. Var hún fyrsta konan til að afreka það. Þá var það í fyrsta sinn sem gítarleikarinn Jimmy Page náði þeim árangri því hann lék undir á gítar í laginu.
Lagið My Girl eftir Smokey Robinson og Ronald White í flutningi hljómsveitarinnar The Temptations komst í fyrsta sæti vinsældalistans í Bandaríkjunum sjötta mars og lagið Stop, In The Name Of Love með Supremes gerði það sama 21. mars.
Sovéski geimfarinn Alexei Leonov varð fyrstur allra til fara í geimgöngu þann átjánda mars. Það gerði hann frá geimskipinu Voskhod 2. Tók gangan 12 mínútur.
Kvikmyndin My Fair Lady hlaut átta óskarsverðlaun á árinu og þar af verðlaun sem besta kvikmyndin. Þá hreppti leikstjóri myndarinnar óskarinn og aðalleikarinn Rex Harrison var valinn besti karlleikarinn. Kvikmyndin Mary Poppins hlaut fimm óskarsverðlaun og þar fékk leikkonan Julie Andrews verðlaun sem besta leikkonan, og lagið Chim Chim Cher-ee var valið besta lagið.
Þann 12. maí tóku Vestur-Þýskaland og Ísrael upp stjórnmálasamband.
Paul McCartney samdi lagið Yesterday fjórtánda júní og Simon og Garfunkel gáfu út lagið Sound of Silence.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða þjóð fékk sjálfstæði frá Bretum 18. janúar 1965?
2. Hver flutti lagið Downtown árið 1965?
3. Hvaða listamenn fluttu lagið Stop, in the name of love?
4. Fyrir hvað var Alexei Leonov þekktur?
5. Hvaða kvikmynd hlaut átta óskarsverðlaun á árinu 1965?
6. Hver var Julie Andrews?
7. Hvaða þjóðir tóku upp stjórnmálasamband 1965?