Kaflar
1964: Minipilsið kynnt til sögunnar

Um miðjan sjöunda áratuginn urðu straumhvörf í tískuheiminum þegar hönnuðurinn Mary Quant kynnti árið 1964 til sögunnar hið svokallaða minipils. Voru þetta stutt pils sem ollu mikilli hneykslun. Samfara þessum stuttu pilsum voru gjarnan há stígvél. Breska sýningarstúlkan Twiggy varð heimsfræg þegar hún kynnti þessa tísku.
Hin breytta tíska endurspeglaði ákveðna byltingu meðal ungs fólks sem vildi aðgreina sig frá foreldrum sínum.
Tískan og tónlistin héldust gjarnan í hendur og því fylgdu pólitískar áherslur. Með Bítlunum breyttist líka tíska karla og í fyrsta sinn á öldinni létu karlmenn hár sitt vaxa og var það kallað bítlahár.
Í kjölfarið, þ.e. á síðari hluta sjöunda áratugarins og byrjun þess áttuna, kom svo hin svokallaða hippatíska en þar var megináherslan á frjálslegan litríkan fatnað; gallabuxur og svokallaðar mussur.
Tískan sem fylgdi pönkinu varð mjög afgerandi á síðari hluta áttunda áratugarins. Þá urðu slitnar og rifnar gallabuxur vinsælar, svartir leðurjakkar, litað hár og alls kyns skraut.