Kaflar

1937: Hindenburg loftfarið ferst

Hugmyndin um að nota loftbelgi til að flytja fólk milli staða var þekkt strax árið 1670 þegar presturinn Francesco Lana de Terzi birti teikningu sína af slíku farartæki. Gældu menn lengi við þessa hugmynd og á heimssýningunni í London árið 1851 kynnti Ástralinn William Bland hugmynd sína að vélknúnum loftbelg sem gæti flogið milli landa.
Næstu árin þróaðist hugmyndin og í upphafi tuttugustu aldar komu fram alls kyns útfærslur sem virkuðu ágætlega.
Í kringum 1930 voru Zeppelin loftbelgirnir fremstir í heiminum og  buðu upp á áætlunarferðir með farþega frá Frankfurt í Þýskalandi til Brasilíu. Þrátt fyrir að fljúga ekki eins hratt og flugvélar þá buðu loftbelgir upp á meiri þægindi en þær.
Árið 1936 hóf fyrirtækið að fljúga með farþega til Bandaríkjanna og smíðuðu af því tilefni stærsta loftbelginn sem þeir nefndu Hindenburg. Fyrsta árið gekk vel en 6. maí árið 1937 við lendingu í New Jersey braust út eldur og loftskipið hrapaði til jarðar. Af þeim 97 sem voru um borð létust 13 farþegar og 22 úr áhöfninni.
Varð þetta til þess að trú fólks á loftbelgjum til farþegaflutninga þvarr og þeir lögðust nánast af.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær kviknuðu fyrst hugmyndir um að nota loftbelgi sem farartæki svo vitað sé?
2. Hver kom fram með fyrstu hugmyndina um loftbelgi sem faratæki?
3. Hvað kynnti Ástralinn William Bland á heimssýningunni í London 1851?
4. Hvaða loftbelgir voru taldir bestir í kringum 1930?
5. Hvert flugu Zeppelin loftbelgir áætlunarflug árið 1930?
6. Hvert hófu Zeppelin loftbelgir að fljúga árið 1936?
7. Hvað var stærsti Zeppelin loftbelgurinn kallaður?
8. Hvað gerðist 6. maí árið 1937?