Kaflar
1938-1945: Kristalsnóttin / Útrýmingarbúðir nasista

Hin svokallað kristalsnótt var atburður sem stóð yfir nóttina 9. til 10. nóvember árið 1938. Þá þyrptust nasistar og almennir borgarar út á götur í Þýskalandi og brutu glugga í verslunum og heimilum gyðinga. Fjöldi gyðinga var myrtur að tilefnislausu og tugþúsundir fluttir í útrýmingarbúðir. Þetta var upphafið á skipulögðum ofsóknum gegn gyðingum.
Þegar Þjóðverjar réðust inn í Pólland voru gyðingar reknir inn í lokuð hverfi, svokölluð gettó, eða fluttir í útrýmingarbúðir.
Þa var sama hvar Þjóðverja bar niður, gyðingar voru alls staðar teknir og drepnir eða sendir í slíkar búðir. Sums staðar voru þeir ekki drepnir strax ef hægt var að nota þá til vinnu.
Á Wannsee ráðstefnunni árið 1942 ræddu nasistar um það hvernig best væri að drepa gyðinga í stórum stíl á sem skemmstum hraða uns engir væru eftir.
Þegar bandamenn fundu útrýmingarbúðirnar í stríðslok blasti óhugnaðurinn við þeim. Er áætlað að 5,7 milljónir gyðinga hafi verið með drepnir af nasistum í stríðinu.