Kaflar

1947: Indverjar öðlast sjálfstæði

Á svæði því sem nú er Indland voru mörg af elstu menningarsamfélögum heims. Þar var auðugt mannlíf sem stóð á sterkum grunni. Þar var vagga trúarbragða,  svo sem hindúatrúar og búddisma, þar var að finna aldagamlar menntastofnanir, þaðan er talnakerfið okkar ættað og þar hafði verið heimili ótal hugsuða, heimspekinga, skálda og vísindamanna í gegnum tíðina.
Þá var það snemma á 17. öld að þangað sigldi breska verslunarfélagið Austur-Indíafélagið í leit að viðskiptum. Reistu þeir bækistöðvar á svæðinu og voru farnir að stjórna stórum hluta þess um miðja 17. öld. Kom til átaka milli þeirra og innfæddra en félagið hélt velli með stuðningi frá herjum bresku krúnunnar. Óánægjan leiddi til uppreisnar árið 1857 sem kveðin var niður af breska hernum og í kjölfarið árið 1858 tóku Bretar alfarið stjórn landsins í sínar hendur og gerðu það að sinni nýlendu.
Í upphafi 20. aldar hófu íbúar landsins að reyna að brjótast undan oki Breta. Einn leiðtogi þeirrar baráttu var Mahatma Gandhi. Það var samt ekki fyrr en 15. ágúst 1947 að Indland hlaut sjálfstæði undan breska konungsvaldinu.  Í kjölfarið var svæðinu skipt í Pakistan og Indland sem bæði urðu sjálfstæð ríki.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða trúarbrögð voru sterk á Indlandi?
2. Hvaða félag reisti bækistöðvar á Indlandi á 17.öld?
3. Hvaða ríki tók stjórn Indlands í sínar hendur árið 1858?
4. Nefndu einn leiðtoga Indverja í baráttu þeirra fyrir sjálfstæði gegn Bretum.
5. Hvenær fengu Indverjar sjálfstæði frá Bretum?
6. Hvaða annað ríki en Indland varð til í kjölfar sjálfstæðis Indlands?