Kaflar

1946: Annie Get Your Gun sett upp á Broadway

Árið 1946 var söngleikurinn Annie Get Your Gun eftir Irving Berlin færður upp á Broadway. Hann var byggður á ævi Annie Oakley. Söngleikurnn varð gríðarlega vinsæll bæði í New York þar sem hann var sýndur ellefu hundruð fjörutíu og sjö sinnum fyrir fullu húsi.
Mörg laganna úr söngleiknum urðu gríðarlega vinsæl og hafa lifað áfram þótt sjálfur söngleikurnn sé lítið kunnur í dag. Það eru lög eins og There´s No Business Like  Showbusiness og Anything you can do I can do better.
Annie Oakley (1860-1926) var fræg á sínum tíma fyrir mikla skotfimi en hún hafði sem ung stúlka þurft að sjá fjölskyldu sinni farborða með því að veiða í matinn. Fimmtán ára gömul sigraði hún í skotkeppni gegn mjög frægri riffilskyttu sem hún giftist síðar. Hjónin gengu til liðs við Buffalo Bill sem bauð upp á sýningar til að kynna villta vestrið og voru mjög vinsælar. Þótti áhorfendum mikið til koma þegar Annie skaut vindilstubb úr hendi eiginmannsins eða hitti spil sem sneri að henni mjóu hliðinni á þrjátíu skrefa færi.
Á síðari hluta ævinnar kenndi Annie konum skotfimi og ýmsa tækni í sjálfsvörn.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver samdi söngleikinn Annie Get Your Gun?
2. Á ævi hvaða persónu byggði söngleikurinn Annie Get Your Gun?
3. Hvaða þekktu smelli var að finna í söngleiknum Annie Get Your Gun?
4. Fyrir hvað var Annie Oakley kunn?
5. Hvaða sýningahóp gekk Annie til liðs við?