Kaflar

1939: Þrúgur reiðinnar eftir John Steinbeck

Ein áhrifamesta skáldsaga 20. aldar en jafnframt ein sú umdeildasta var Þrúgur reiðinnar (Grapes of Wrath) eftir John Steinbeck sem kom út árið 1939. Sagan varð strax vinsæl og seldust yfir 400.000 eintök fyrsta árið. Steinbeck hlaut Pulitzer verðlaunin fyrir hana 1940.
Söguna byggði Steinbeck á reynslu sinni sem blaðamaður þegar hann gerði greinar um hræðilegar aðstæður farandverkamanna í Kaliforníu árið 1936. Segja má að eitt meginþema sögunnar sé að fólk þurfi að taka höndum saman þegar hættur steðja að. Það sé eina leiðin til að komast af.
Í blaðagrein sem forsetafrúin Eleanor Roosevelt skrifaði um söguna sagði hún að lestur hennar hefði verið ógleymanleg lífsreynsla. Að erfitt hefði verið að leggja hana frá sér en að sama skapi hefði hún kviðið fyrir framhaldinu. Varð bókin til þess að hún fór sjálf að kanna aðstæður verkafólks og í kjölfarið voru lög um verkafólk bætt.
Sumir fundu sögunni flest til foráttu og var hún bönnuð víða, bæði vegna orðbragðsins og einnig þess að margir litu svo á að sagan væru áróður fyrir kommúnisma.
Íslensk þýðing sögunnar kom út árið 1944.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær kom sagan Þrúgur reiðinnar út?
2. Hver skrifaði Þrúgur reiðinnar?
3. Hvernig viðtökur fegnu Þrúgur reiðinnar?
4. Um hvað fjallar þessi saga?
5. Hvert er meginþema sögunnar?
6. Hvað fannst Eleanor Roosevelt um Þrúgur reiðinnar?
7. Hvernig hafði bókin raunveruleg áhrif?
8. Fyrir hvað var þessi fræga saga gagnrýnd?