Kaflar

1950-1960: Rokkið tekur völdin

Á tuttugustu öldinni tók tónlist miklum og byltingarkenndum breytingum. Rokkið varð til upp úr miðri öldinni og varð gríðarlega vinsælt hjá ungu fólki. Rokkið átti uppruna sinn í Bandaríkjunum og varð til sem blanda úr ólíkum tónlistarstefnum, sálar-, blús-, sveitatónlist o.fl.
Á þessum tíma varð auðveldara fyrir fólk að verða sér úti um sína uppáhaldstónlist því fyrsta 33 snúninga 12 tommu hljómplatan sá dagsins ljós í september 1948 og fyrsta 45 snúninga smáskífan birtist ári síðar.
Ein fyrsta svokallaða ofurstjarnan í rokkinu var Fats Domino en lag hans The Fat Man sem kom út í desember árið 1949 varð geysivinsælt. Naut Domino gríðarlegra vinsælda alveg fram til 1962.
Þá komu listamenn eins og Elvis Presley með That´s All Right (1954), Chuck Berry með Maybellene (1955), Bill Haley and his Comets með Rock Around the Clock (1955), Little Richard með Long Tall Sally (1956), Buddy Holly með Peggy Sue (1955), Summertime Blues með Eddie Cochran (1958), The Clovers með Love Potion No 9 (1959) og Chubby Checker með Twist (1960).

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær varð rokkið til?
2. Hvar varð rokkið til?
3. Hvað var það sem auðveldaði fólki að hlusta á tónlist á þessum tíma?
4. Hvenær kom fyrsta 33 snúninga hljómplatan á almennan markað?
5. Hvaða listamaður sló í gegn með laginu The Fat Man árið 1949?