Kaflar
1949: 1984 eftir George Orwell

Kína varð lýðveldi að nafninu til árið 1912, en í raun ríkti þar borgarastyrjöld. Þar börðust Kínverski þjóðarflokkurinn (Kuomintang) og Kínverski kommúnistaflokkurinn um völdin auk einstakra stríðsherra í norðurhluta landsins. Í skjóli þessara átaka leituðust Japanir við að taka yfir valin héruð.
Í fyrstu sameinuðust kommúnistar og þjóðernissinnar gegn stríðsherrunum og unnu á þeim sigur árið 1928. Þá sneri þjóðernisflokkurinn undir stjórn Chian-Kai-Shek sér að kommúnistum og hafði betur í fyrstu.
Árið 1931 hertóku Japanir Mansjúríuhéraðið í Kína, en áfram héldu átökin milli þjóðernissina og kommúnista; leiðtogi þeirra frá 1930 var Maó Zedong.
Árið 1937 kom til stríðs milli Kínverja og Japana og höfðu Japanir betur og unnu grimmdarverk þar sem þeir höfðu sigur. Þá hófu þjóðernissinar og kommúnistar aftur samstarf, og árið 1941 gekk Kína til liðs við bandamenn í síðari heimsstyrjöldinni.
Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk tók aftur við blóðugt borgarastríð í Kína sem lauk með sigri kommúnista árið 1949 og hafa þeir haldið völdum æ síðan.