Kaflar

1952: Ýmislegt

Þann sjötta febrúar varð Elísabet prinsessa drottning Stóra Bretlands.
Fimmtánda júní var Dagbók Önnu Frank í fyrsta sinn gefin út í enskri þýðingu.
Tuttugasta og áttunda júní var í fyrsta sinn haldin keppnin Ungfrú alheimur. Það var finnska stúlkan Armi Kuusela sem varð fyrir valinu.
Leikritið Músagildran eftir Agötu Christie var frumsýnt 6. október og hefur verið sýnt allar götur síðan. Ekkert leikrit hefur notið annarrar eins hylli. Í nóvember 2022 hafði það verið sýnt 28.915 sinnum og yfir 10 milljónir leikhúsgesta séð það.
Þann tíunda desember hlaut Albert Schweitzer friðarverðlaun Nóbels. Schweitzer var guðfræðingur, rithöfundur, heimspekingur, orgelleikari, læknir og mannvinur. Verðlaunin hlaut hann fyrir lífsspeki sína sem hann kallaði lotningu fyrir lífinu.  Frægastur var hann fyrir að stofna og reka Albert Schweitzer-sjúkrahúsið í Lambaréné, sem var þá í frönsku Miðbaugs-Afríku en er nú í Gabon.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða atburður átti sér stað 6. febrúar árið 1952?
2. Hvaða bók kom út 15. júní 1952?
3. Hvaðan var fyrsta Ungfrú alheimur?
4. Hvert er vinsælasta leikrit allra tíma?
5. Hver hlaut friðarverðlaun Nóbels þann 10. desember árið 1952?
6. Í hverju fólst lífsspeki Alberts Schweitzer?
7. Hvar kom Albert Schweitzer á fót sjúkrahúsi?