Kaflar
1953: Fyrstir á tind Everestfjalls

Það var árið 1953 að mönnum tókst fyrst að klífa tind Everestfjalls, hæsta fjalls í heimi, svo vitað sé. Þeir sem það gerðu voru nepalskur maður að nafni Tenzing Norgay og nýsjálenskur maður að nafni Edmund Hillary.
Áður höfðu ýmsir hópar fjallgöngumanna reynt að komast á fjallstindinn en ekki tekist og aðeins tveimur dögum fyrr höfðu tveir Bretar verið ansi nálægt því en urðu þó frá að hverfa þar sem súrefnisbirgðirnar voru á þrotum.
Í endurminningum sínum frá 1929 segir Robert Graves frá því að félagi hans, George Mallory, hafi ásamt öðrum fjallgöngumanni Andrew Irvine reynt við fjallið árið 1924. Taldi hann líklegt að þeir hefðu náð að komast á tindinn en farist á leiðinni niður.
Til marks um það þá var haft eftir dóttur Mallorys að hann hafi verið með ljósmynd af konu sinni í vasanum í þeim tilgangi að skilja hana eftir á tindinum. Þegar lík Mallorys fannst árið 1999 var ljósmyndina hvergi að finna í fórum hans.