Kaflar
1949: Kommúnistar undir stjórn Maó taka völdin í Kína

Eitt merkilegasta bókmenntaverk 20. aldar er skáldsagan 1984 eftir George Orwell. Sagan var skrifuð árið 1948 og kom út ári síðar. Heiti sögunnar fæst með því að höfundurinn snýr upp á titilinn, 48 verður 84.
Sagan birtir okkur framtíðarsýn þar sem samfélag manna lýtur ákveðinni ógnarstjórn og allir eru stöðugt undir eftirliti þeirra sem ráða.
Aðalpersóna sögunnar Winston Smith starfar í Sannleiksráðuneytinu í London við að endurskrifa söguna að hentugleika þeirra sem ráða. Er fylgst með honum öllum stundum af hinum svokallaða Stóra bróður.
Með eftirlitinu er flokkurinn að reyna að koma í veg fyrir hugsanlega uppreisn og ganga þeir svo langt í því að reynt er að útrýma öllum orðum sem hægt er að tengja slíkri byltingu. Það telst hugsunarglæpur að hugsa það sem flokknum er ekki þóknanlegt. Winston reynir að brjótast undan oki Stóra bróður, og sú tilraun dregur dilk á eftir sér.
Sagan er vel skrifuð og sannfærandi og með ólíkindum hvað Orwell tekst vel að sjá fyrir hvað verða mun. Á hún jafn mikið erindi við fólk í dag eins og þá, ef ekki meira.