Kaflar
1955: Ýmislegt

Þann 2. mars neitaði Claudette Colvin, fimmtán ára bandarísk stúlka af afrísku bergi brotin, að gefa eftir sæti sitt í strætó fyrir hvítri konu í Montgomery í Alabama og það þótt ökumaður vagnsins hefði krafist þess. Claudette var í kjölfarið borin nauðug út úr vagninum í handjárnum. Varð úr þessu dómsmál sem Claudette vann þar sem aðskilnaður vegna hörundslitar var álitinn stríða gegn stjórnarskránni.
Það var fyrst árið 1955 að Elvis Presley fór að vekja verulega athygli. Fyrsta lagið sem hann hljóðritaði var My Happiness árið 1953 en það náði litlum sem engum vinsældum. Það gerði hins vegar lagið That´s all right (Mama) sem kom út ári síðar. En það var 27. janúar 1956 að smellurinn Heartbreak Hotel kom út og fór beina leið í fyrsta sæti bandaríska vinsældalistans. Þar með var Elvis Presley orðinn einn vinsælasti dægurlagasöngvari allra tíma.