Kaflar

1954: Frakkar hverfa frá Indókína

Síðan í kringum 1887 hafði Suður-Víetnam verið nýlenda Frakka og Norður-Víetnam, Kambódía og Laos verið að mestu undir þeirra yfirráðum. Var þetta svæði kallað Indókína.
Notuðu Frakkar svæðið að mestu til að rækta bómull til eigin nota og var því ekki hægt að nota svæðið til ræktunar matvara fyrir þá sem þar bjuggu. Var mikil óánægja með þetta meðal íbúanna sem bjuggu við mikla almenna fátækt.
Í seinni heimsstyrjöldinni hernámu Japanir Indókína og komu Frakkar engum vörnum við.
Það var þá sem kommúnistinn Ho Chi Minh sneri aftur til Víetnam, en hann hafði flust til Parísar skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina. Skipulagði hann skæruhernað gegn Japönum og í lok seinni heimsstyrjaldar lýsti hann yfir nýju lýðveldi í Víetnam. En Frakkar sneru aftur með her 1945 og ætluðu að taka landið aftur. Ho Chi Minh var ekki á því og hélt uppi kröftugri andspyrnu gegn Frökkum með hjálp frá Kínverjum. Þrátt fyrir mun lakari vopn og búnað unnu Víetnamar sigur á Frökkum sem árið 1954 héldu á brott frá Indókína. Víetnam var þá skipt upp í Norður- og Suður-Víetnam.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða lönd voru kölluð Indókína?
2. Hvaða þjóð réð nánast öllu í Indókína frá 1887?
3. Til hvers nýttu Frakkar svæðið?
4. Hvað varð um Indókína í síðari heimsstyrjöldinni?
5. Hver stýrði andspyrnu landsmanna gegn Japönum í seinni heimsstyrjöldinni?
6. Hvað gerði Ho Chi Minh að heimsstyrjöldinni lokinni?
7. Hvernig brugðust Frakkar við yfirlýsingu Ho Chi Minh?
8. Hvenær játuðu Frakkar sig sigraða í Indókína?