Kaflar
1963: John F. Kennedy myrtur

Þann 22. nóvember árið 1963 gerðist sá atburður sem skók alla heimsbyggðina, en þá var John F. Kennedy forseti Bandaríkjanna skotinn til bana. Kennedy varð forseti Bandaríkjanna árið 1960 er hann sigraði fulltrúa repúblikana, Richard Nixon, naumlega í kosningum. Var hann þá yngstur allra til að gegna því embætti. Árið 1964 átti að kjósa aftur og hafði Kennedy ákveðið að bjóða sig fram.
Það var svo í forsetaheimsókn til Dallas í Texas, er Kennedy sat ásamt konu sinni í opnum bíl, að hann var skotinn til bana. Klukkutíma síðar höfðu yfirvöld haft hendur í hári ætlaðs geranda sem hét Lee Harvey Oswald. Hann neitaði alfarið að hafa framið ódæðið.
Daginn eftir þegar verið var að færa Oswald milli fangelsa stökk maður að nafni Jack Ruby að Oswald og skaut hann til bana. Ekki er alveg ljóst hvað Ruby gekk til en hann lést í fangelsi 1966 áður en réttað var yfir honum. Hafa síðan þá orðið til margar samsæriskenningar um morðið en engin þeirra verið staðfest.
Lyndon B. Johnson varaforseti tók við sem forseti að Kennedy látnum og sigraði í næstu kosningum.