Kaflar

1962: Bítlarnir taka upp lagið Love Me Do

Með aukinni almennri útvarpshlustun og fjölgun hljómtækja fór fólk að umgangast  tónlist á nýjan hátt, og tónlist fór að verða mun sterkara afl í lífi þess en fyrr.   
Þann 5. október árið 1962 kom út lítil 45 snúninga hljómplata með tveimur lögum með hljómsveit sem kallaði sig Bítlana (The Beatles). Var hljómsveitin sem stofnuð var árið 1960 nánast óþekkt utan Manchester og Liverpool þá. Þetta voru lögin Love Me Do og P.S. I Love You. Stór hljómplata með fjórtán lögum kom svo út 22. mars 1963 og nefndist Please Please Me
Strax frá fyrsta degi nutu Bítlarnir gríðarlegra vinsælda og sala á plötum þeirra sló öll met. Bítlarnir störfuðu saman allt til ársins 1970 og á þeim tíma gáfu þeir út tólf  hljómplötur hverja annarri betri.  
Söluhæsta plata Bítlanna var Sergeant Pepper´s Lonely Hearts Club Band sem kom út árið 1967 og seldist í yfir 32 milljónum eintaka. Eitt vinsælasta lag plötunnar var lagið Hey Jude sem trónaði á toppi vinsældalista í samfleytt 19 vikur.  
Þá kom fyrsta plata Bob Dylans út árið 1962 og má því segja að árið 1962 hafi haft mikil áhrif í tónlistarsögunni.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvaða hljómplata kom út 5. október 1962?
2. Hvað hét fyrsta stóra hljómplata Bítlanna?
3. Hvað störfuðu Bítlarnir í mörg ár?
4. Hvað gáfu Bítlarnir út margar stórar hljómplötur?
5. Hvað hét söluhæsta hljómplata Bítlanna?
6. Hvaða lag Bítlanna trónaði á toppi vinsældalista í samfleytt 19 vikur?
7. Hvaða annar listamaður gaf út sína fyrstu plötu árið 1962?