Kaflar
1960: Patsy Cline skrifar undir samning við Decca

Sú söngkona sem talin er hafa haft meiri áhrif á 20. öld en flestar aðrar var bandaríska söngkonan Patsy Cline. Hún er ekki hvað síst þekkt fyrir að vera ein sú fyrsta til að brúa bilið frá sveitatónlist yfir í dægurlagatónlist. Hljóðritunarferill hennar spannaði þó ekki nema um átta ár en hún lést í flugslysi árið 1963 á hátindi frægðar sinnar.
Cline eða Virginia Patterson Hensley eins og hún hét með réttu fæddist árið 1932. Fimmtán ára gömul var hún farin að syngja víða og árið 1954 skrifaði hún undir fyrsta hljóðritunarsamning sinn en fyrsta heila hljómplata hennar kom út 5. ágúst árið 1957. Á þeirri plötu varð lagið Walking After Midnight nokkuð vinsælt.
En það var fyrst þegar hún komst á samning hjá hljómplötufyrirtækinu Decca árið 1960 að vinsældir hennar urðu almennar og stöðugar. Allt í allt mun hún hafa hljóðritað 104 lög og enn í dag er mikið hlustað á þau.
Meðal kunnustu laga hennar eru lögin Always, You belong to me, I Fall to Pieces, Have You Ever Been Lonely, Sweet Dreams Of You og síðast en ekki síst lagið Crazy eftir Willie Nelson.