Kaflar

1939: Síðari heimsstyrjöldin hefst: Þjóðverjar ráðast inn í Pólland

Þegar Adolf Hitler komst til valda árið 1933 í Þýskalandi var markmið hans að gera Þýskaland að stórveldi aftur með öllum tiltækum ráðum hvað sem það kostaði.
Hann byrjaði á því að endurheimta Rínarlöndin 1936 sem gekk þvert gegn Versalasamningnum. Þá hélt hann með her inn í Austurríki og lagði það undir sig 1938. Þá fékk hann það í gegn að Súdetaland sem þá tilheyrði Tékkóslóvakíu var afhent Þjóðverjum í mars 1939.  Það var svo 1. september að Hitler réðst inn í Pólland og hertók það. Þá gátu Bretland og Frakkland ekki lengur horft aðgerðalaus á og 3. september lýstu þau yfir stríði við Þýskaland.
Þeir sem börðust í þessari mannskæðu styrjöld skiptust í tvær meginfylkingar, bandamenn og Öxulveldin. Helstu löndin í liði bandamanna voru Bretland, Frakkland, Bandaríkin, Rússar og Kínverjar, en í liði Öxulveldanna voru það  Þjóðverjar, Ítalir og Japanir.
Seinni heimsstyrjöldin var mannskæðasta stríð sögunnar þar sem meira 100 milljón manns frá 30 löndum tók beinan þátt. Er talið að um 50-85 milljónir manna hafi látist af þess völdum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hvenær komst Adolf Hitler til valda í Þýskalandi?
2. Hvert var meginmarkmið Hitlers?
3. Hvað endurheimti Hitler 1936?
4. Hvaða land lagði Hitler undir sig árið 1938?
5. Hvað varð til þess að Frakkar og Englendingar lýstu yfir stríði gegn Þýskalandi?
6. Hvaða þjóðir voru kallaðar Öxulveldin?