Kaflar
25. Fyrsta hjónaband Guðrúnar

Brúðkaup var haldið í Garpsdal. Guðrún elskaði Þorvald lítið „og var erfið í gripakaupum“ og reiddist Þorvaldi ef hann vildi ekki kaupa þá dýrgripi sem hún vildi eignast.
Maður hét Þórður Ingunnarson. Hann bjó sunnan Gilsfjarðar, á Hóli í Saurbæ, með konu sinni. Hann lagði oft leið sína í Garpsdal, og senn fóru menn að pískra um að ástarsamband væri milli hans og Guðrúnar.
Það var eitt sinn sem oftar að Guðrún bað Þorvald að kaupa dýran grip. Þorvaldur sagði að hún kynni sér ekki hóf – og hann sló hana kinnhest. Hún sagði þá eitthvað á þá leið að hann hefði gefið henni það sem konum þætti miklu skipta en það væri fallegur andlitslitur! Og hún bætti því við að nú hefði hann vanið hana af öllu kvabbi! Hún sagði Þórði frá þessu sama kvöld. Þórður ráðlagði henni að skilja við Þorvald og gefa það upp sem ástæðu að hann hefði klæðst skyrtu með allt of víðu hálsmáli (sem minnti á kvenmannsskyrtu). Guðrún saumaði skyrtu með slíku hálsmáli, sagði síðan skilið við Þorvald og fór heim til Lauga en fékk helming alls fjár Þorvalds. Þá var Guðrún sautján ára.
kinnhestur: löðrungur
