Kaflar
24. Gestur ræður draumana og tárfellir við Laxá

Guðrún þagði þangað til Gestur hafði lokið máli sínu en varð dreyrrauð í andliti meðan hún hlustaði á orð hans. Þá sagði hún að Gestur hefði eflaust spáð betur ef draumar hennar hefðu gefið tilefni til þess.
Nú reið Gestur brott og þegar hann nálgaðist Hjarðarholt hitti hann Ólaf páa sem bauð honum heim til sín því að hann vildi sjá hinn fallega skála sem Ólafur hafði reist. Ólafur fylgdi síðan Gesti úr hlaði og reið með honum að Laxá. Þar voru margir ungir sveinar að leik, þar á meðal þeir Kjartan og Bolli. Gestur vissi hverjir þeir voru þótt hann hefði aldrei séð þá fyrr. Gestur tárfelli eftir að hann hafði kvatt vin sinn Ólaf páa. Aðspurður sagði hann að hann táraðist vegna þess að hann grunaði að vinátta þeirra Kjartans og Bolla mundi snúast upp í fjandskap og enda með skelfingu.
dreyrrauð: rauð sem blóð (dreyri: blóð)
ægishjálumr: hjálmur sem vekur ótta; bera ægishjálm yfir einhvern: vera einhverjum langtum fremri
