Kaflar

26. Annað hjónaband Guðrúnar

Þórður Ingunnarson reið þetta sama vor til alþingis og kom við á Laugum hjá Ósvífri. Þar slóst Guðrún í för með Þórði. Þau ræddu margt á leiðinni, og á Bláskógaheiði spurði Guðrún Þórð hvort það væri rétt að Auður kona hans væri alltaf í brókum með setgeira. Þórður kannaðist ekki við það, en Guðrún benti honum á að hún væri kölluð Bróka-Auður. Það varð úr að Þórður krafðist skilnaðar við Auði á þinginu fyrir þá sök að vera í setgeirabrókum eins og „karlkonur“.
Eftir að Þórður kom heim af þinginu bað hann Guðrúnar og var brúðkaup haldið á Laugum. Guðrún var hamingjusöm. En Auður vildi hefna sín á Þórði. Hún reið um nótt með smalamanni sínum til Lauga og var þá reyndar í brókum! Hún hafði frétt að Guðrún væri ekki heima. Nú gekk Auður inn að lokrekkju Þórðar og veitti honum mikið sár á bringu og hendi með saxi sínu. Hélt svo á brott og reið heim að Hóli. Þórður lá lengi í sárum.
En saga Þórðar varð ekki löng. Hann drukknaði á Breiðafirði í hríðarveðri sem galdrahyski í Skálmarnesi orsakaði. – Guðrún Ósvífursdóttir syrgði mann sinn mjög. Hún eignaðist stuttu síðar son og var honum gefið nafnið Þórður eftir föður sínum. Snorri goði, mikill höfðingi og vinur Guðrúnar, bauð henni að taka sveininn til fósturs á Helgafelli.
setgeiri: klofbót í brókum karla lokrekkja: aflokað rúmstæði (með hurð)

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?