Kaflar

4. Ömmustelpa Auðar fer á flakk

En snúum okkur aftur að Þorgerði, ömmustelpu Auðar. Maður hennar, Dala-Kollur, var miklu eldri en hún, og ekki leið á löngu áður en hann veiktist og dó. Þorgerður var þá enn ung, og hún festi ekki yndi á Íslandi. Hún ákvað að halda til Noregs í leit að nýjum ævintýrum; kannski var ekki nógu mikið úrval á Íslandi af göfugum ungum körlum! En Höskuldur sonur hennar varð eftir og tók við búinu á Höskuldsstöðum þó hann væri ennþá mjög ungur. Í Noregi kynntist Þorgerður manni sem hét Herjólfur og hann var mikill höfðingi og vinsæll. Þau gengu í hjónaband og voru mjög hamingjusöm. Þau eignuðust son sem fékk nafnið Hrútur.
En Herjólfur varð ekki langlífur; Þorgerður verður ekkja í annað sinn, og eirðarleysið kemur yfir hana á ný. Hún ákvað að fara aftur til Íslands til eldri sonarins Höskulds því að hún elskaði hann heitt. Hún tók mikið fé með sér til Íslands því að Herjólfur hafði verið auðugur maður. En Hrútur varð eftir hjá frændum sínum í Noregi.
Nú lifði Þorgerður í nokkur ár hjá Höskuldi. En svo kom að því að hún tók sótt og andaðist og hún var lögð í haug eins og Auður djúpúðga amma hennar. En Höskuldur tók allt fé móður sinnar í sína vörslu, einnig það fé sem Hrútur bróðir hans átti með réttu að fá. Nú er Þorgerður úr sögunni, konan sem hafði farið ung með ömmu sinni frá Skotlandi um Orkneyjar og Færeyjar til Íslands, síðan til Noregs í ævintýraleit en þaðan aftur til Íslands.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hverjir voru eiginmenn Þorgerðar Þorsteinsdóttur?
2. Hverjir voru synir Þorgerðar?
3. Nefndu dæmi um erfiðar ákvarðanir sem Þorgerður hefur þurft að taka.
4. Hvar er líkt með útför Þorgerðar og ömmu hennar, Auðar djúpúðgu?
5. Hvað gæti átt eftir að valda spennu milli hálfbræðranna Höskulds og Hrúts?
6. Beygðu orðið eirðarleysi í öllum föllum eintölu.