Kaflar
5. Höskuldur og ambáttin

Þegar hér er komið sögu fer Höskuldur, sonur Þorgerðar, norður í Bjarnarfjörð á Ströndum og biður sér konu sem hét Jórunn Bjarnardóttir og þótti besti kvenkostur á Vestfjörðum. Þessu var vel tekið, og ákveðið var að brúðkaup skyldi haldið á Höskuldsstöðum. Allt gekk bærilega milli ungu hjónanna, en sagt var um Jórunni að hún væri vitur og mikill skörungur og heldur skapstór. Þau eignuðust börn, og hét elsti sonur þeirra Þorleikur; hann var þungur í skapi.
Nú ákveður Höskuldur að fara til Noregs; hann vildi fá sér timbur því að hann langaði að byggja nýjan og reisulegan bæ. Hann er í Noregi um veturinn en hitti ekki Hákon konung. Um vorið fór hann til Brenneyja við Gautland því að hann vissi að konungurinn mundi vera þar á þingi með konungum nágrannalandanna. Þar var líka kaupstefna sem hann langaði að sækja.
Einn dag kom Höskuldur að miklu tjaldi og þar sat skrautlega klæddur maður sem kallaður var Gilli hinn gerski. Höskuldur sagðist vilja kaupa af honum ambátt. Í ljós kom að inni í tjaldinu sátu tólf ambáttir. Ein þeirra var illa klædd og sýndist Höskuldi hún fríð sýnum. Hann vildi fá hana keypta en hún reyndist vera þrisvar sinnum dýrari en hinar ambáttirnar. Eftir nokkurt samningaþref keypti Höskuldur þessa konu, en áður hafði hann fengið að vita að hún væri mállaus.
Höskuldur tók nú ambáttina og fór með hana til búðar sinnar. Hann svaf há henni um nóttina. Og um morguninn færir hann henni falleg föt í stað larfanna sem hún hafði klæðst hjá Gilla hinum gerska.
