Kaflar

3. Tvær veislur: brúðkaup og erfidrykkja

Eini ömmustrákur Auðar djúpúðgu hét Ólafur feilan. Auður hélt mikið upp á hann og vildi láta hann taka við búinu í Hvammi eftir hennar dag og fá sér góða konu. Ólafur tók þessu öllu vel, og konan sem hann eignaðist hét Álfdís. Boðað var til fjölmennrar veislu, og meðal annarra gesta komu þangað báðir bræður Auðar og einnig systir hennar úr Eyjafirði. Hún hét Þórunn hyrna og var gift hinum fræga landnámsmanni Helga magra í Kristnesi.
Auður svaf óvenju lengi um morguninn en var þó á fótum þegar gestirnir komu. Hún var há og þrekleg og tók vel á móti gestum sínum og veitti þeim vel. Hún lýsti því yfir að Ólafur sonarsonur hennar ætti að taka við landnámsjörðinni í Hvammi. Eftir það bað hún menn að skemmta sér eins og þeim líkaði en sjálf sagðist hún ætla að ganga til skemmu sinnar. Hún gekk hart út úr skálanum, og töluðu menn um hvað hún væri virðuleg. En daginn eftir fannst hún látin þar sem hún sat í svefnstofu sinni. Nú var því ekki aðeins um brúðkaupsveislu að ræða, heldur líka erfidrykkju Auðar. Síðasta dag boðsins var Auður flutt til haugs og lögð í skip sem komið hafði verið fyrir í haugnum ásamt miklu fé. Eftir það var mold kastað yfir og haugnum lokað.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?

Spurningar

1. Hver tók við búinu í Hvammi eftir Auðar dag? Hvernig var hann skyldur Auði?
2. Getur þú nefnt eina systur Auðar? Hver var maður hennar?
3. Hvað gæti verið til marks um að kraftar Auðar séu á þrotum þegar hún tekur á móti gestum sínum?
4. Það má tala um tær veislur sem haldnar voru í Hvammi í þetta sinn þó að upphaflega hafi þetta átt að vera ein veisla. Hvaða veislur erum við að tala um?
5. Hvernig var búið um Auði þegar hún var jarðsett?
6. Hvað merkir orðið erfidrykkja?