Kaflar
9. Höskuldur fagnar ekki Hrúti bróður sínum

Höskuldur á Höskuldsstöðum varðveitti mikið fé sem hálfbróðir hans Hrútur átti, og talað var um að Höskuldur mundi missa mikið ef Hrútur kæmi til landsins og heimtaði arfinn eftir móður sína. En Hrútur var orðinn háttsettur maður í Noregi við hirð Haralds konungs Gunnhildarsonar.
Gunnhildur drottning var mjög hrifin af Hrúti og þoldi ekki að nokkur maður talaði illa um hann. En nú vildi Hrútur fara til Íslands að hitta frændur sína og vitja móðurarfsins. Gunnhildur var ekki ánægð að missa Hrút frá sér en hún gaf honum gullhring að skilnaði og bað hann vel fara. Hrútur steig á skip og sigldi í haf og kom í Breiðafjörð. Hann lagði skipi sínu við Kambsnes, innst í Hvammsfirði, skammt frá Höskuldsstöðum. Höskuldur frétti þetta en fór þó ekki á fund bróður síns að fagna honum.
Hrútur byggði sér bæ á Kambsnesi. Síðan hélt hann á fund bróður síns og krafðist móðurarfsins. En Höskuldur sagðist ekki þurfa að borga honum neitt því að móðir þeirra hefði farið með mikla peninga til Noregs þegar hún fluttist þangað.
