Kaflar
8. Hrappur

En að því kom að Hrappur veiktist enda var hann orðinn gamall. Hann kallaði til sín Vigdísi konu sína, sem var frænka Höskulds, og sagði henni að hún skyldi láta grafa hann í eldhúsdyrunum og skyldi líkið vera grafið standandi! Eftir það dó Hrappur og var grafinn standandi. En nú varð hann miklu verri viðureignar en fyrr. Hann drap vinnufólkið á bænum og gerði nágrönnum erfitt fyrir. Loks gafst ekkja hans upp og fór til bróður síns á Snæfellsnesi.
Nágrannarnir heimtuðu að Höskuldur leysti þá út úr þessum vandræðum sem draugurinn Hrappur orsakaði og því fór Höskuldur og gróf líkið upp og kom því fyrir langt frá byggðu bóli. Draugagangurinn lagðist þá af og Sumarliði sonur Hrapps og Vigdísar fór aftur til Hrappsstaða en sturlaðist fljótlega og dó. Vigdís virðist hafa látist um svipað leyti. Systir hennar tók arf eftir hana.
