Kaflar

10. Hrútur tekur til sinna ráða

Þannig liðu þrjú ár og aldrei fékk Hrútur neitt úr dánarbúinu. En eitt sinn þegar Höskuldur var að heiman reið Hrútur til Höskuldsstaða með tólf manna liði og tók þar tuttugu nautgripi og hélt síðan með þá heim. Húskarlar Höskulds urðu varir við þetta, þeir vopnuðust og söfnuðu liði og urðu fimmtán saman. Hröðuðu þeir sér síðan á eftir Hrúti, og það kom til bardaga í dal sem síðan heitir Orustudalur. Þarna felldi Hrútur fjóra húskarla Höskulds en hinir báðu um grið.
Þegar Höskuldur frétti af ráninu og dauða húskarla sinna safnaði hann liði og ætlaði að hefna sín á bróður sínum. En þá tók Jórunn kona hans í taumana og varaði mann sinn við; hún benti honum á að Hrútur hefði sett fram sanngjarnar kröfur og að margir nágrannar og frændur þeirra bræðra mundu standa með Hrúti í þessari deilu. Í því sambandi benti hún Höskuldi á að hann hefði komið illa fram við frændfólk sitt þegar hann ákvað að standa með Þórði godda eftir að kona hans (og frænka Höskulds) skildi við hann. Hrútur róaðist, og þannig fór að þeir bræður sættust.
Hrútur eignaðist sextán syni og tíu dætur með tveimur konum.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?