Kaflar

23. Draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur

Maður hér Ósvífur Helgason, mikill spekingur, afkomandi Bjarnar austræna, bróður Auðar djúpúðgu. Ósvífur bjó á Laugum í Sælingsdal og átti fimm syni og eina dóttur sem hét Guðrún. Í Laxdæla sögu segir um hana: „Hún var kvenna vænst er upp óxu á Íslandi, bæði að ásjónu og vitsmunum.“ Hún var kurteis og örlát og kunni að koma fyrir sig orði.
Frændi Ósvífurs var Gestur Oddleifsson í Haga á Barðaströnd, mikill spekingur. Eitt sinn þegar hann var á leið til alþingis kom hann að laug sem er skammt frá bænum Laugum. Guðrún Ósvífursdóttir kom þá til laugarinnar og þau töluðu lengi saman. Hún bauð honum gistingu á Laugum með öllu liði sínu, en hann kvaðst þurfa að halda lengra.
En áður en Gestur hélt áfram ferð sinni sagði Guðrún honum fjóra drauma sem höfðu valdið henni áhyggjum. Í fyrsta draumnum var hún með krókfald á höfði sem henni fannst ekki fara sér vel, og því kastaði hún faldinum út í læk.
Í öðrum draumnum var hún stödd hjá vatni og var með silfurhring á hendi; henni fannst hringurinn vera mikil gersemi og hugsaði sér að eiga hann lengi. En hringurinn rann af hendi hennar og féll í vatnið og þótti henni sárt að missa hann.
Þriðji draumurinn var á þá leið að henni fannst hún vera með gullhring á hendi; en þótt gull ætti að heita dýrmætari málmur en silfur fannst henni gullhringurinn ekki fara sér neitt sérstaklega vel. Hún féll og rak hringinn í stein þannig að hann brotnaði í tvennt og það blæddi úr honum. Þá hugsaði hún að brestur hefði áður verið kominn í hringinn; og þegar hún skoðaði hann nánar sá hún fleiri bresti, og henni fannst hún sjálf hafa átt sök á þeim.
Í fjórða draumnum bar hún hjálm úr gulli, skreyttan gimsteinum. Henni fannst hjálmurinn þungur og hann steyptist af höfði hennar og út á Hvammsfjörð.
vænst: (hér:) álitlegust
krókfaldur: höfuðbúnaður sem sveigur eða krókur stóð upp úr.

Gagnvirk æfing (fjölvalsspurningar)

Ert þú tilbúin(n)?